Fotbolti.net
27.04.16 - 14:49
Magnús Már Einarsson

Tveir Króatar til viðbótar í Fram (Staðfest)

Tveir Króatar til viðbótar í Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framarar hafa verið duglegir að styrkja leikmannahóp sinn fyrir Inkasso-deildina undanfarna daga.

Eins og Fótbolti.net greindi frá í fyrradag þá er króatíski varnarmaðurinn Dino Gavric kominn til félagsins og í gær kom varnarmaðurinn Haukur Lárusson frá Fjölni.
Tveir Króatar hafa nú bæst við hópinn en það eru Ivan Parlov og Ivan Bubalo. Þetta kemur fram á heimasíðu Fram.

Parlov er 32 ára gamall miðjumaður. Hann hefur auk heimalandsins, leikið á Kýpur og í Austurríki.

Bubalo er 26 ára framherji. Hann hefur auk heimalandsins leikið í Bosníu.

Komnir:
Arnar Sveinn Geirsson frá Víkingi Ó.
Atli Fannar Jónsson frá Víkingi R.
Brynjar Kristmundsson frá Víkingi Ó.
Dino Gavric
Gunnlaugur Hlynur Birgisson frá Breiðabliki á láni
Hafþór Þrastarson frá Fjarðabyggð
Haukur Lárusson frá Fjölni
Hilmar Þór Hilmarsson frá Val
Hlynur Atli Magnússon frá Noregi
Ingólfur Sigurðsson frá Víkingi Ó.
Ivan Bubalo
Ivan Parlov
Kristófer Jacobson Reyes frá Víkingi Ó.
Mate Paponja frá Króatíu
Ósvald Jarl Traustason frá Breiðabliki á láni
Sigurður Hrannar Björnsson frá Víkingi R. á láni
Sigurpáll Melberg Pálsson frá Víkingi R.
Stefano Layeni frá Leikni F.

Farnir:
Alexander Aron Davorsson í Aftureldingu
Alexander Már Þorláksson í Hött
Cody Nobles Mizell
Davíð Einarsson í Fylki (Var á láni)
Einar Már Þórisson í KV
Ernir Bjarnason í Breiðablik (Var á láni)
Eyþór Helgi Birgisson
Gunnar Helgi Steindórsson
Hrannar Einarsson í Hamar
Magnús Már Lúðvíksson hættur
Ómar Friðriksson í Víking R. (Var á láni)
Sebastien Uchechukwu Ibeagha
Sigurður Gísli Snorrason í FH (Var á láni)
Tryggvi Sveinn Bjarnason
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.