27.04.22 - 13:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Galdur fer til FCK í glugganum

Galdur (lengst til vinstri) að 'hita upp' gegn KR

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Ásgeir Galdur Guðmundsson er búinn að semja við danska stórliðið FC Kaupmannahöfn. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í vetur.
Galdur er uppalinn hjá ÍBV en skipti yfir í Breiðablik sumarið 2019. Hann mun yfirgefa Kópavogsliðið í sumar og halda til Danmerkur. Hann á að baki fjóra leiki fyrir U17 landsliðið.

Lestu um leikinn: KR 0 - 1 Breiðablik
Galdur er fæddur árið 2006, nýorðinn sextán ára, og var í leikmannahópi Breiðabliks í stórleiknum gegn KR á mánudag.
„Hann fer út þegar glugginn opnar aftur, ég held að það sé í byrjun júlí eða lok júní," sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, við Fótbolta.net í gær.
Óskar svaraði játandi þegar Sverrir Örn Einarsson, fréttaritari Fótbolta.net, spurði hvort hann gerði ráð fyrir því að geta nýtt krafta Galdurs þangað til.
Sjá einnig:
Stefnir í atvinnumennsku en ætlar fyrst að klára grunnskólann almennilega
Galdur til FCK (Staðfest) - „Rétti staðurinn fyrir mig"