„Bara ótrúlega vel, þetta var statement sigur. Við þurftum á þessu að halda. Nú er farið að taka okkur alvarlega og við vitum alveg hvað við gátum, það er bara gott að geta sýnt það loksins í dag" sagði Adam Ægir Pálsson leikmaður Vals eftir útisigur gegn Stjörnunni í Bestu Deild karla.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 4 Valur
Eru þið að reyna að sýna deildinni hvað í ykkur býr?
„Jú jú. Okkur er svo sem alveg sama hvað fólk er að segja í deildinni. Við vitum alveg hvað við gátum, við þurftum að fara vinna leiki. Þetta var skjálfti í okkar fyrsta leik eftir langt undirbúningstímabil og skrýtið undirbúningstímabil. En nú erum við komnir í gang og við vitum alveg hvað við gátum og við eigum alveg nóg inni , finnst mér."
Adam Ægir um mörkin sem þeir skoruðu í dag.
„Við erum með svakaleg gæði í liðinu og ég meina bæði markið hjá Lúkasi Loga og bæði hjá Tryggva, world class. Þeir sýndu hvað þeir gátu í dag og ég hef alltaf sagt það með Tryggva, það er aldrei þar sem hann á fjóra leiki án þess að skora og það kom í dag. Ég var viss um að það myndi koma annaðhvort í þessum leik eða á móti KR."
Hvað var það góða sem þið gerðu í dag?
„Baráttan til að byrja með og svo erum við með svakaleg gæði. Mér fannst við líka góðir á boltanum, við náðum að halda vel í boltann og þrátt fyrir vont veður, það var dálítið mikill vindur það kannski réð eitthvað í leiknum. Við sýndum gæði og líka tilbúnir að berjast og vissum alveg að það er erfitt að komast á Samsung, þeir eru með gott lið. Bara gott að geta náð sigri hérna þrátt fyrir að suffera stundum inn á milli sem gerist þegar þú ert að spila á móti góðum liðum. En við sýndum bara gæði og það er það sem þarf í þessum leik."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.























