Amin Cosic leikmaður KR var fremstur í flokki á Meistarvöllum í kvöld þegar KR sigraði FH 4-2.
Langflestar sóknir liðsins fóru í gegnum vinstri kantinn og réðu FHingar einfaldlega ekkert við Amin Cosic.
Hver er helsti munurinn á liðinu í dag samanborið við KR liðið um mitt tímabil í fyrra þegar Amin Cosic kom frá Njarðvík?
"Það er allt annað hugarfar, við töluðum talsvert um þetta á undirbúningstímabilinu. Við erum líka miklu sterkari í hausnum og með góðan og þéttan hóp"

Lestu um leikinn: KR 4 - 2 FH
Jóhannes Karl gerði breytingu í hálfleik þegar hann tók Grétar Snæ Gunnarsson hægri bakvörð FH út af og setti hinn unga Kristján Snæ Frostason inn í hans stað.
Það verður ekki af honum Kristjáni tekið að honum var kastað í djúpu laugina og þurfti að eiga við sjóðandi heitan Amin Cosic en þó má hann prísa sig sælan að hafa ekki fengið annað gula spjaldið í tvígang.
Var Amin hissa að Kristján hefði ekki verið rekinn út af með seinna gula?
"Já ég klobbaði einn og svo annan, í kjölfarið var ég hreinlega tekinn niður og var að búast við aukaspyrnu og seinna gula. Svona er þetta í þessari deild og maður veit aldrei"
Amin Cosic fékk nokkur dauðafæri til að bæta við mörkum og hefði hæglega geta skorað þrennu hér í kvöld.
Er Amin svekktur að hafa ekki skorað fleiri?
"Ég þarf að taka nokkrar aukaæfingar með Aroni Sig. Maður er svekktur eftir leik að hafa ekki skorað úr þessum tveimur færum sem ég fékk"
Það stóð upp úr í stúkunni hvað hlaupageta Amins var góð og hann hafði úthald til að hlaupa allan leikinn.
Er hann búinn að æfa hlaupin sérstaklega?
"Maður þarf að hlaupa þegar maður spilar fyrir Óskar. Við erum búnir að æfa hlaup, taka spretti og djöflast á undirbúningstímabilinu."
Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.