Það vakti athygli í gær að Danijel Dejan Djuric var tekinn af velli í hálfleik þegar KA tók á móti Keflavík í Bestu deildinni. Danijel hafði ekki átt góðan hálfleik en kom sér hins vegar í fínt færi skömmu áður en KA komst yfir gegn gangi leiksins.
Staðan í hléi var 1-1 en Keflavík var betra liðið í hálfleiknum og þjálfari heimamanna vildi breyta til.
Staðan í hléi var 1-1 en Keflavík var betra liðið í hálfleiknum og þjálfari heimamanna vildi breyta til.
Lestu um leikinn: KA 1 - 2 Keflavík
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var spurður út í skiptinguna á Danijel. Hann og Valdimar Logi Sævarsson voru teknir af velli fyrir Markús Mána Pétursson og Hallgrím Mar Steingrímsson.
Var taktísk ákvörðun að taka Danijel út af?
„Nei, ég bara valdi að taka hann út af og annan leikmann, það sem ég taldi best fyrir liðið. Ég hefði getað tekið helvíti marga út af eftir fyrri hálfleikinn, en ég valdi að gera þessa breytingu. Og mér fannst við aðeins skárri í seinni hálfleik. En við þurfum að gera betur," sagði Haddi sem var ekki ánægður með liðið sitt eins og heyra má í viðtalinu hér neðst.
Vita hvað bíður þeirra
Næsti leikur er nágrannaslagur gegn Þór á VÍS vellinum í Þorpinu.
„Ég ætla rétt að vona að menn mæti með alvöru hugarfar í þann leik því ég get lofað þér því að Þórsararnir mæta með alvöru hugarfar. Ég fór að sjá þá í síðasta leiki og við vitum alveg hvað bíður okkar. Þú veist alveg að ef þú mætir ekki inn á völlinn með rétt hugarfar þá taparu fótboltaleikjum, skiptir engu máli hvað liðið heitir. Ég ætla rétt að vona að ég fái alvöru svar við þessu þegar við mætum Þórsurunum," sagði Haddi.



