„Við vorum frábærir, þetta var erfiður leikur við skrýtnar aðstæður, en við vorum brave á boltanum. Vorum að láta hann aðeins rúlla í fyrra hálfleik og reyna að opna þá. Það gekk öðru hvoru að komast í fín færi og skoruðum tvö frábær mörk, vissulega" sagði Hermann Hreiðarsson þjálfari Vals eftir 2-4 útisigur gegn Stjörnunni í 4. umferð Bestu Deildarinnar.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 4 Valur
"Þeir eru líka með svaka sterkt lið og góð hreyfing og mikil gæði. Það var erfitt að telja þetta. Við breyttum aðeins í seinni hálfleiknum og fórum í fimm manna línu, mér fannst við ná meiri tökum á leiknum, varnarlega. Án þess að hafa verið mikið með boltann og stýra því aðeins án bolta."
Hemmi var ánægður með vörnina í seinni hálfleik.
„Já, þeir voru truflaðir, alveg geggjaðir. Erfitt eins og ég segi að reyna við boltann, flug á honum og svona. Mikið af hlaupum, þeir fóru marga menn fram í teig, þannig að við vörðumst eins og brjálæðingar, allir sem einn. Það var þessi vilji og kraftur í liðinu sem landaði þessum sigri."
Að suffera saman, er þetta þannig sigur?
„Já, hundrað prósent. Það hefur verið núna stígandi í okkar leik í heildina og menn eru að jellast aðeins saman og það er þessi samhugur í liðinu. Það er alvöru stemming í klefanum hjá okkur og við ætlum okkur einhverja hluti og þá þarftu að mæta í hvern einasta leik með alvöru hugarfar og við gerðum það enn og aftur hér í dag. Geggjað."
Hvernig var þetta sóknarlega hjá ykkur í dag?
„Mér fannst í fyrri hálfleik þá þorðum við aðeins að láta hann rúlla meira í seinni hálfleik. Þeir þrýstu okkur svolítið, en við náðum að beita ágætis skyndisóknum eða mjög góðum öðru hvoru. Það var allt liðið í háminu, alveg geggjað."
Samúel Kári var ekki á skýrslu í dag, af hverju?
„Það var bara samningsatriði og ég skil það, Stjörnumenn vildu hafa það inni að hann væri ekki með í þessum leik og hvernig það er orðað og ég skil það. En það var bara eðlilegt."
Hvað finnst þér um svona samninga?
„Já jé, ég skil þetta. Auðvitað er þetta fúlt fyrir hann kannski fyrst og fremst, svekktur að spial ekki. Svona er þetta bara, I get it."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.























