Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram var mjög sáttur eftir 5-1 hörkusigur Fram gegn ÍBV í dag.
Lestu um leikinn.
Lestu um leikinn.
Lestu um leikinn: Fram 5 - 1 ÍBV
„Það er alltaf gott að skora 5 mörk og spilamennskan var frábær. Ég gat leyft öllum að vera með, og þeir sem komu inná áttu það skilið. Það er samkeppni um stöður og breiddin mjög góð.''
ÍBV áttu í miklum erfiðleikum gegn Fram flestallan leikinn.
„Mér fannst við ná að halda þeim í skefjum flestallan leikinn. Við spiluðum boltanum vel í fyrri hálfleik þrátt fyrir mikinn mótvind, og í seinni hálfleik náðum við að halda þeim mikið á þeirra vallarhelming. En ÍBV spilar fínan fótbolta og náðu nokkrum sinnum að spila í gegnum okkur.''
Fram spilar gegn FH á Kaplakrika sunnudaginn næsta, 3. maí og segir Rúnar vilja halda frammistöðu þeirra í dag gangandi.
„Við viljum auðvitað alltaf standa okkur en við verðum að núllstilla okkur fyrir hann, fara yfir þennan leik og sjá hvað þarf að laga í leik okkar.''
Félagsskiptaglugginn lokar nú á miðvikudaginn og var talað um það að Magnús Þórðarson væri á förum frá liðinu, en hann var hvorki með í þessum leik, né gegn Þór í seinustu umferð.
„Við höfum fengið fyrirspurnir um hann og aðra leikmenn. Við sjáum til hvað gerist á næstu dögum og aldrei að vita hvort það verði einhver hreyfing á hópnum.''
Aðspurður hvort Fram væri að leita að einhverjum leikmönnum fyrir lok gluggans var svarið einfalt.
„Nei. Við erum ekki að leita að neinum og það er enginn á leiðinni í Fram. Við erum mjög ánægðir með hópinn sem við erum með.''
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.























