Fotbolti.net
27.04.26 - 20:59
Hafþór Örn Laursen

Þorri Stefán: Ég hef verið kallaður Joe Gomez Fram-liðsins

Auglýsing
Þorri Stefán Þorbjörnsson, leikmaður Fram.

Þorri Stefán Þorbjörnsson, leikmaður Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorri Stefán, leikmaður Fram, átti frábæran leik, er Fram vann frækinn 5-1 sigur gegn ÍBV í dag.

Lestu um leikinn.
„Ég er rosalega sáttur með frammistöðuna okkar og fannst við ná að halda ÍBV í skefjum nánast allan leikinn, þeir skora náttúrulega frábært aukaspyrnumark, svipað og á móti Þór.''

„Við náðum að halda okkur á tánum allan tímann, droppuðum ekki neitt ogfrábært að ná markinu inn.''


Þorri Stefán skoraði sitt fyrsta mark í Bestu Deild í dag og kveðst vera sáttur.

„Tilfinningin er frábær, þetta er leikur númer 52 í efstu deild og loksins datt það inn, en ég hef verið kallaður Joe Gomez Fram''.

Fram spilar við FH á Kaplakrika í næstu umferð, næstkomandi sunnudag, 3. maí.

„Við stefnum á sigur þar. Við viljum halda þessari frammistöðu gangandi, þar sem við vorum góðir á móti Þór og svo mjög góðir í dag og viljum halda þessu uppi.''

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.