Fotbolti.net
27.05.14 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Gonzalez tekinn við Espanyol (Staðfest)

Sergio Gonzalez.

Sergio Gonzalez.

Canon

Mynd: Getty Images

Sergio Gonzalez hefur verið staðfestur sem nýr stjóri Espanyol en hann tekur við af Mexíkananum Javier Aguire sem stýrði liðinu í þrettánda sæti La Liga á liðnu tímabili.
Gonzalez stýrði varaliði Espanyol á síðasta tímabili en þessi 37 ára maður var þrjú ár leikmaður Espanyol milli 1998 og 2001 áður en hann lék yfir 300 leiki fyrir Deportivo La Coruna.

Levante er einnig að ganga í gegnum þjálfaraskipti. Liðið hafnaði í tíunda sæti en viðræður við Joaquin Caparros um að halda áfram sigldu í strand. Félagið er ekki tilbúið að ganga að launakröfum Caparros.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.