Í fótboltalausa tímabilinu er um að gera að rifja upp gamalt og gott mark.
Í dag rúllum við til ársins 2010 og skoðum mark sem Karim Benzema skoraði fyrir Real Madrid gegn Deportivo La Coruna.
Benzema renndi boltanum auðveldlega í netið en fegurðin á bakvið markið var stoðsending Guti.
Guti var kominn í gegn þegar hann ákvað að gefa magnaða hælsendingu á Benzema sem skoraði.
Ef þú átt hugmynd að góðu marki til að rifja upp sendu þá tölvupóst á [email protected]
Athugasemdir