Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 27. maí 2022 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
Sevilla vill ekki minna en 65 milljónir fyrir Kounde
Mynd: Getty Images

Chelsea vill kaupa franska miðvörðinn Jules Kounde af Sevilla um leið og eigendaskipti á félaginu ganga í gegn í sumar.


Thomas Tuchel er búinn að setja Kounde efst á óskalistann sinn en Chelsea missir hálfa varnarlínuna frá sér í sumar og þarf menn til að fylla í skörðin sem myndast.

Sevilla ætlar þó ekki að selja Kounde ódýrt, sérstaklega ekki í ljósi yfirvofandi sölu á Diego Carlos, öðrum miðverði félagsins, til Aston Villa.

Fabrizio Romano greinir frá því að Sevilla vilji fá að minnsta kosti 65 milljónir evra til að leyfa Kounde að skipta um félag.

Kounde er 23 ára gamall og á tvö ár eftir af samningi sínum við Sevilla. Hann hefur spilað 133 leiki á þremur árum á Spáni auk þess að vera búinn að vinna sér inn byrjunarliðssæti í franska landsliðinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner