Fotbolti.net
27.06.13 - 10:00
Magnús Már Einarsson

Arshavin til Zenit St. Pétursborg (Staðfest)

Arshavin til Zenit St. Pétursborg (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Andrey Arshavin hefur gengið aftur til liðs við sitt gamla félag Zenit St. Pétursborg í Rússlandi.

Hinn 32 ára gamli Arshavin yfirgaf Arsenal á dögunum en hann hefur nú gert tveggja ára samning við Zenit.

Arsenal keypti Arshavin frá Zenit á 15 milljónir punda í janúar árið 2009.
,,Einn af bestu fótboltamönnum Rússlands undanfarin áratug er að koma aftur í heimaborg sína,\" sagði í yfirlýsingu frá Zenit.

Arshavin var úti í kuldanum hjá Arsenal á síðasta tímabili en hann spilaði einungis 80 mínútur í ensku úrvalsdeildinni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.