Fotbolti.net
27.06.13 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Chris McCann fyrstu kaup Owen Coyle (Staðfest)

Chris McCann fyrstu kaup Owen Coyle (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Owen Coyle, nýráðinn knattspyrnustjóri Wigan, er búinn að klófesta sinn fyrsta leikmann við stjórnvöl félagsins.

Chris McCann kemur frítt til félagsins frá Burnley og lék undir stjórn Coyle hjá Burnley frá 2007 til 2010.
McCann er 25 ára gamall og mörg lið, bæði í Úrvalsdeild og Championship, hafa verið á eftir honum í sumar vegna samningsloka 1. júlí.

,,Ég er mjög ánægður með að mín fyrstu kaup séu á jafn góðum leikmanni og Chris er,\" sagði Coyle.

,,Hann mun koma með mikinn styrk inn í liðið. Hann er kraftmikill sóknarsinnaður miðjumaður sem skorar mörk, hleypur á milli vítateiga og er óhræddur við að vera grimmur í að vinna boltann aftur á miðjunni.

,,Ég naut þess að vinna með honum hjá Burnley. Það gerðist nokkrum sinnum að við þurftum að hafna stóru tilboði í hann, hann var það mikilvægur liðinu og átti stóran þátt í því að liðið komst upp í Úrvalsdeild.\"


McCann hefur skorað 27 mörk í 238 deildarleikjum fyrir Burnley á átta árum, en hann kom til félagsins þegar hann var aðeins 18 ára.
Chris McCann fyrstu kaup Owen Coyle (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.