Fotbolti.net
27.06.14 - 21:24
Jóhann Ingi Hafþórsson

Bafetimbi Gomis til Swansea (Staðfest)

Gomis í leik með Lyon.

Gomis í leik með Lyon.

Canon

Mynd: Getty Images

Bafetimbi Gomis hefur gengið til liðs við Swansea frá Lyon.
Samningur Gomis við Lyon var runninn út og fá Swansea leikmanninn því án greiðslu.

Gomis skrifar undir fjögurra ára samning við félagið.

Talið var að Swansea hafi verið á eftir leikmanninum síðasta sumar en illa gékk að ganga frá þeim kaupum og snéru Svanirnir sér því að Wilfried Bony í staðin.

Gomis skoraði 22 mörk á síðustu leiktíð og samtal 62 mörk í 172 leikjum. Hann komst ekki í landsliðshóp Frakka fyrir HM.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.