27.06.14 - 12:31
Magnús Már Einarsson
Luke Shaw til Manchester United (Staðfest)

Luke Shaw.

Mynd: Getty Images

Luke Shaw.

Mynd: Getty Images
Manchester United hefur keypt vinstri bakvörðinn Luke Shaw frá Southampton.
Kaupverðið hljóðar upp á 30 milljónir punda en Shaw er dýrasti táningurinn í sögunni.

Shaw er annar leikmaðurinn sem United kaupir í sumar, en Ander Herrera gekk í raðir félagsins frá Athletic Bilbao í gær.
Hinn 18 ára gamli Shaw á þrátt fyrir ungan aldur 60 leiki að baki í ensku úrvalsdeildinni en hann lék sinn fyrsta leik með Southampton þegar hann var 16 ára.
Shaw þykir líklegur sem framtíðar bakvörður í enska landsliðinu en hjá Manchester United mun hann berjast við reynsuboltann Patrice Evra um vinstri bakvarðar stöðuna.