Fotbolti.net
27.06.14 - 06:00
Daníel Freyr Jónsson

Matej Vydra aftur til Watford (Staðfest)

Matej Vydra í leik með Watford.

Matej Vydra í leik með Watford.

Canon

Mynd: Getty Images

Watford hefur fengið framherjann Matej Vydra á árslöngum lánssamningi frá ítalska félaginu Udinese.

Snýr Vydra þar með aftur til Championship-félagsins eftir að hafa skorað 22 mörk og verið valinn besti leikmaður deildarinnar leiktíðina 2012/13.
Þessi tékkneski framherji lék með WBA í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en stóðst ekki væntingar þar og skoraði einungis þrjú mörk í 25 leikjum.

Bæði Udinese og Watford eru í eigu hinnar ítölksu Pozzo fjölskyldu og hefur Watford mikið verið að fá leikmenn frá ítalska félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.