Fotbolti.net
27.06.19 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Djibril Sow til Frankfurt (Staðfest)

Djibril Sow í leik gegn Íslandi í Þjóðadeildinni.

Djibril Sow í leik gegn Íslandi í Þjóðadeildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eintracht Frankfurt hefur fengið svissneska landsliðsmanninn Djibril Sow frá Young Boys.

Sow er 22 ára miðjumaður sem þekkir vel til þýska boltans eftir að hafa verið í herbúðum Borussia Mönchengladbach. Hann lék fjölda leikja fyrir varalið félagsins en aðeins einn fyrir aðalliðið áður en hann hélt til Young Boys.
Hann á fjóra landsleiki fyrir Sviss.

Frankfurt hafnaði í sjöunda sæti þýsku deildarinnar á síðasta tímabili.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.