27.06.19 - 15:15
Arnar Daði Arnarsson
Hákon Þór aftur í Fjarðabyggð (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Hákon Þór Sófusson hefur gengið í raðir Fjarðabyggðar frá HK. Hákon Þór fær leikheimild með Fjarðabyggð 1. júlí og verður því löglegur með liðinu gegn KFG í 10. umferð 2. deildarinnar sem fram fer 4. júlí.
Hákon Þór þekkir vel til hjá Fjarðabyggð en hann lék með liðinu frá 2010 til 2016 og lék þar samtals 136 leiki með félaginu í deild og bikar. Í þeim leikjum skoraði hann 29 mörk.
Síðustu tvö sumur lék Hákon með HK í Inkasso-deildinni en hann hætti hjá félaginu í vetur og hefur því ekkert leikið knattspyrnu í sumar.
Fjarðabyggð er í 6. sæti 2. deildarinnar með 12 stig. Fjórum stigum frá fallsæti og fjórum stigum frá 2. sætinu. Liðið mætir Dalvík/Reyni á föstudaginn klukkan 20:30.