
Ísland er núna 3-1 yfir gegn Serbíu í síðasta æfingaleik sínum fyrir Evrópumótið í Sviss.
Sandra María Jessen kom Íslandi á bragðið og bætti svo Karólína Lea Vilhjálmsdóttir við öðru marki.
Sandra María Jessen kom Íslandi á bragðið og bætti svo Karólína Lea Vilhjálmsdóttir við öðru marki.
En besta mark leiksins hingað til skoraði Sveindís Jane Jónsdóttir. Hún keyrði upp með boltann og smellti honum upp í fjærhornið.
Líklega er þetta eitt flottasta mark sem Sveindís hefur skorað á ferlinum, hennar fjórtánda landsliðsmark fyrir Ísland.
Það er um hálftími eftir af leiknum þegar þessi frétt er skrifuð en frekari umfjöllun um hann verður á síðunni í kvöld.
Hægt er að sjá markið með því að smella hérna.
Athugasemdir