27.07.13 - 10:09
Hafliði Breiðfjörð
KR að fá Jonas Grønner á láni frá Brann í Noregi (Staðfest)

Frá fyrri leik KR og Standard Liege í Evrópudeildinni fyrir rúmri viku.

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson

Norskir fjölmiðlar greina frá því í dag að KR sé að fá varnarmanninn Jonas Grønner á láni frá Brann í Noregi. Brynjar Björn Gunnarsson meiddist í Evrópudeildinni í vikunni og Andri Ólafsson hefur verið meiddur í allt sumar.
Grønner mun koma til Íslands í dag ti að ganga frá samningum þessa efnis en hann er 19 ára gamall miðvörður sem hefur spilað tvo leiki í byrjunarliði Brann á tímabilinu og komið þrisvar inná sem varamaður.
Brann staðfestir vistaskiptin á vef sínum í dag og segir að Grønner verði hjá KR út tímabilið hér á landi. Leikmaðurinn og Brann munu hafa viljað að hann fengið meiri reynslu með því að spila í sterkari deild en norsku 2. deildinni og því hafi Ísland orðið fyrir valinu.
,,Mig langar bara að spila í eins sterkri deild og mögulegt er. Ég fæ tækifæri til að fara til stærsta félagsins á Íslandi þar sem ég mun spila reglulega í byrjunarliði og þar snúast allir leikir um að vinna, sem ég tel að verði gott fyrir þroska minn sem knattspyrnumanns,\" sagði leikmaðurinn á vef Brann í dag.
Íþróttastjóri Brann segir á vef félagsins að varnarmaður KR hafi meiðst í Evrópudeildinni á fimmtudaginn og því hafi félagið óskað eftir því við Brann að fá Jonas á láni. Þar sem félagið vildi að Jonas fengi að spila hafi félögin því náð saman seint í gærkvöldi.

Heimild: Vefur Brann