27.07.13 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Yannick Sagbo til Hull City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Hull City hefur fest kaup á Yannick Sagbo frá TG Evian í Frakklandi.
Sagbo, sem er 25 ára gamall framherji, ólst upp í AS Monaco og spilaði þar 20 leiki áður en hann hélt til TG Evian.
Hann lék þar í þrjú ár og skoraði 22 mörk í 90 leikjum, en hann hefur nú gert tveggja ára samning við Hull.
Hann er sjöundi leikmaðurinn sem Hull fær til sín í sumar, en þegar hefur félagið fengið Steve Harper, Curtis Davies, Allan McGregor, Maynor Figueroa, George Boyd og Ahmed Elmohamady.