Fotbolti.net
27.07.20 - 12:12
Magnús Már Einarsson

Liverpool selur Lovren til Zenit St. Pétursborg (Staðfest)

Liverpool selur Lovren til Zenit St. Pétursborg (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Rússneska félagið Zenit St Pétursborg hefur keypt Dejan Lovren, varnarmann Liverpool, í sínar raðir.

Kaupverðið er í kringum ellefu milljónir punda.
Hinn 31 árs gamli Lovren kveður Liverpool eftir sex ára dvöl hjá félaginu.

Króatinn var lengi vel fastamaður hjá Liverpool en hann hefur hins vegar verið aftarlega í röðinni yfir miðverði hjá liðinu undanfarið eitt og hálft ár.

Lovren vill fá að spila meira en hann var á eftir Virgil van Dijk, Joe Gomez og Joel Matip í röðinni hjá Liverpool.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.