Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 27. júlí 2021 19:10
Ívan Guðjón Baldursson
Alex Freyr lánaður frá KR í Kórdrengi (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kórdrengir eru búnir að tryggja sér góðan liðsstyrk fyrir seinni hluta tímabilsins í Lengjudeildinni.

Alex Freyr Hilmarsson er búinn að skrifa undir lánssamning út tímabilið og kemur hann frá KR.

Alex Freyr hefur komið við sögu í 9 leikjum í Pepsi Max-deildinni í sumar og hefur í heildina spilað 41 keppnisleik fyrir KR. Þar áður var hann lykilmaður í liði Víkings R.

Kórdrengir eru í þriðja sæti Lengjudeildarinnar, fjórum stigum eftir ÍBV í öðru sæti en með leik til góða. Þeir stefna beinustu leið upp í efstu deild og vonast til að Alex Freyr geti hjálpað þeim við það. Þeir hafa verið að styrkja sig vel í sumar og verður áhugavert að sjá hvernig nýju leikmennirnir ná saman.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner