Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 27. júlí 2021 20:20
Ívan Guðjón Baldursson
Diego Rico seldur til Real Sociedad (Staðfest)
Mynd: EPA
Vinstri bakvörðurinn Diego Rico er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Real Sociedad í spænska boltanum.

Rico er 28 ára gamall og hefur dvalið hjá Bournemouth undanfarin þrjú ár og á 83 leiki að baki fyrir félagið.

Rico lék fyrir Real Zaragoza og Leganes á Spáni áður en hann var fenginn í enska boltann, en á þeim tíma var Borussia Dortmund meðal annars orðað við bakvörðinn.

Sociedad, sem endaði í fimmta sæti spænsku deildarinnar og leikur í Evrópudeildinni í vetur, borgar um 1,5 milljón evra fyrir Rico sem átti aðeins eitt ár eftir af samningi.
Athugasemdir
banner
banner
banner