Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 27. júlí 2021 08:33
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: BBC 
Rooney kvartar til lögreglu vegna mynda á samfélagsmiðlum
Wayne Rooney.
Wayne Rooney.
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney knattspyrnustjóri Derby County hefur kvartað til lögreglu vegna myndaraðar sem tekin var af honum en lögmenn hans staðfestu þetta við BBC.

Myndir hafa gengið á samfélagsmiðlum undanfarna daga en á þeim er Rooney sofandi og óþekktar konur stilla sér upp við hlið hans.

Ekki er ljóst hvenær myndirnar voru teknar og ekkert er sagt benda til þess að Rooney hafi gert nokkuð af sér eða hagað sér óeðlilega.

Talsmenn hans staðfesta að málið hafi verið tilkynnt til lögreglu en lögmenn hans neita að sjá sig um eðli myndanna.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner