Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 27. júlí 2021 21:50
Ívan Guðjón Baldursson
Van Aanholt fer til Galatasaray
Mynd: Getty Images
Fabrizio Romano greinir frá því að hollenski bakvörðurinn Patrick van Aanholt sé búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Galatasaray í Tyrklandi.

Van Aanholt kemur til félagsins á frjálsri sölu eftir fjögur og hálft ár hjá Crystal Palace.

Van Aanholt verður 31 árs í ágúst og lék 134 leiki á tíma sínum hjá Palace. Hann á auk þess 19 leiki að baki fyrir hollenska landsliðið.

Galatasaray ætlar að styrkja sig fyrir tímabilið eftir 5-1 rassskellingu gegn PSV Eindhoven í forkeppni Meistaradeildarinnar á dögunum.

Lazio og Fenerbahce voru einnig orðuð við Van Aanholt í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner