Fotbolti.net
27.08.13 - 14:18
Magnús Már Einarsson

Liverpool lánar Assaidi til Stoke (Staðfest)

Liverpool lánar Assaidi til Stoke (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Stoke hefur fengið kantmanninn Oussama Assaidi á láni frá Liverpool út tímabilið.

Assaidi kom til Liverpool fyrir ári síðan en þessi 25 ára gamli leikmaður spilaði einungis fjóra leiki í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
,,Oussama var með nokkra möguleika á borðinu og ég er ánægður með að hann valdi okkur,\" sagði Mark Hughes stjóri Stoke.

,,Hann er spennandi leikmaður sem er mjög hraður og beinskeyttur.\"

Assaidi er fjórði leikmaðurinn sem Stoke semur við í sumar á eftir Erik Pieters, Marc Muniesa og Juan Agudelo.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.