27.08.20 - 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Brighton selur Montoya til Real Betis (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Real Betis er búið að festa kaup á hægri bakverðinum Martin Montoya, sem var á sínum tíma lykilmaður í U21 landsliði Spánverja.
Montoya er 29 ára gamall og hóf ferilinn hjá Barcelona þar sem hann spilaði 67 leiki fyrir aðalliðið. Hann spilaði fyrir Inter, Betis og Valencia
áður en hann gekk í raðir Brighton sumarið 2018.
Montoya á eitt ár eftir af samningi sínum við Brighton og missti byrjunarliðssæti sitt til Tariq Lamptey undir lok síðasta tímabils. Hann á 52 leiki að baki á tveimur tímabilum í ensku úrvalsdeildinni.
Betis, sem átti slakt tímabil og endaði aðeins fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið, borgar tvær milljónir evra fyrir bakvörðinn.