27.08.20 - 15:16
Ívan Guðjón Baldursson
Pepe Reina kominn til Lazio (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Lazio er búið að staðfesta komu spænska markvarðarins Pepe Reina til félagsins. Ítalskir fjölmiðlar tala um að hér sé um tveggja ára samning að ræða.
Reina á 38 ára afmæli á mánudaginn og mun því spila hjá Lazio næstum til fertugs. Hann kemur á frjálsri sölu frá AC Milan, þar átti hann eitt ár eftir af samningi sínum en félagið leyfði honum að fara frítt til að losna við hann af launaskrá.
Reina var lánaður til Aston Villa í janúar og spilaði 12 úrvalsdeildarleiki á nýliðnu tímabili.
Reina á 36 landsleiki að baki fyrir Spán og hefur spilað fyrir félög á borð við Barcelona, Liverpool, Napoli og Bayern á frábærum ferli.
Hann var sagður vera á leið til Valencia en spænska félagið tók sér of langan tíma til að ganga frá samningsmálum svo hann ákvað að spila frekar fyrir Lazio.

📣 @PReina25 è un nuovo calciatore biancoceleste!#CMonEagles 🦅 pic.twitter.com/yyQYD2d2Fx
— S.S.Lazio (@OfficialSSLazio) August 27, 2020