27.08.21 - 15:55
Elvar Geir Magnússon
Ronaldo til Man Utd (Staðfest)

Ronaldo með Manchester United 2008.

Mynd: Getty Images

Ronaldo með Manchester United 2008.

Mynd: Getty Images
Manchester United hefur tilkynnt um kaup á Cristiano Ronaldo frá Juventus.
Ronaldo verður í Portúgal út landsleikjagluggann og fer svo til Manchester. Hann mun mögulega spila sinn fyrsta leik í endurkomunni gegn Newcastle United á Old Trafford 11. september.
„Það er með mikilli ánægju sem Manchester United staðfestir að félagið hafi náð samkomulagi við Juventus um kaup á Cristiano Ronaldo," segir í tilkynningu Manchester United.
„Það er mikil tilhlökkun meðal allra hjá félaginu að bjóða Cristiano velkominn aftur til Manchester."
Ronaldo hefur fimm sinnum unnið Ballon d’Or gullknöttinn og er með yfir 30 stóra titla á ferilskrá sinni. Þar á meðal eru fimm sigrar í Meistaradeild Evrópu, fjórir heimsmeistaratitlar félagsliða, sjö deildarmeistaratitlar á Englandi, Spáni og Ítalíu, og Evrópumeistaratititill með Portúgal.
Síðast þegar hann lék fyrir Manchester United skoraði hann 118 mörk í 292 leikjum.
Kaupverð er ekki gefið upp en það er talið vera í kringum 25 milljónir punda.

Welcome 𝗵𝗼𝗺𝗲, @Cristiano 🔴#MUFC | #Ronaldo
— Manchester United (@ManUtd) August 27, 2021