Borac velti 173 milljónum krónum meira en Víkingur


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í kvöld mætir Víkingur bosnísku meisturunum FK Borac Banja Luka í seinni leik liðanna í umspili um sæti Sambandsdeildinni. Fyrri leikur liðanna, sem fór fram í Fossvoginum, endaði með þremur mörkum Borac gegn einu marki Víkings. Það er allt undir hjá Víkingi í kvöld, sér í lagi nokkur hundruð milljónir króna sem fást við það að komast inn í Sambandsdeildina.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 23. ágúst á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.
Ef litið er á rekstrarreikninga liðanna má sjá að tekjur Borac eru einhverjum 173 milljónum króna hærri en tekjur Víkings voru árið 2025. Miðað við gengið á bosníska markinu um síðustu áramót voru tekjur Borac 795 milljónir í krónum talið. Á sama tíma var veltan hjá Víkingi 622 milljónir króna.
Útgjöldin voru hins vegar töluvert hærri hjá Víkingi. Árið 2025 námu útgjöld Víkings 723 milljónum króna en til samanburðar voru útgjöld Borac 327 milljónir króna. Stærsti einstaki útgjaldaliðurinn hjá báðum félögum var launakostnaður. Hjá Víkingi námu útgjöld vegna launa 379 milljónir króna og var launahlutfallið því 61%. Hins vegar var launakostnaður Borac 133 milljónir króna og launahlutfallið öllu lægra en hjá Víkingi, eða sem um nemur 17%.
