27.08.26 - 11:00
Brynjar Ingi Erluson
De Zerbi: Myndi gjarnan vilja halda honum

Roberto De Zerbi

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Sandro Tonali er að vinna í líkamlega forminu

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi

Mynd: EPA
Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, var nokkuð ánægður með framlagið í 5-1 sigrinum á Charlton í enska deildabikarnum í gær, en vill sjá meiri stöðugleika.

TENGT EFNI
Enski deildabikarinn: Frábær frumraun hjá Savio - Barnes skaut Newcastle áfram
Tottenham hafði mikla yfirburði gegn Charlton. Mikey Moore skoraði og lagði upp mark í fyrri hálfleiknum áður en Kevin Danso, Savio og Ben Davies komust á blað í þeim síðari.
Þetta var fyrsti sigur Tottenham á tímabilinu og De Zerbi vonast til að liðið geti byggt ofan á frammistöðuna.
„Við þurfum að sjá hið raunverulega Tottenham leik eftir leik. Við verðum að sýna stöðugleika og vinna nokkra leiki í röð, hvort sem það eru tveir, þrír, fjórir, fimm eða sex. Eins og ég sagði fyrir nokkrum dögum þurfum við að breyta hugarfarinu.“
Savio lék sinn fyrsta leik fyrir Tottenham eftir komuna frá Manchester City og kynnti sig með stæl með marki og stoðsendingu.
„Þetta var fullkominn dagur fyrir hann. Næsta stóra skref hjá honum er að fjölga mörkunum því miðað við hæfileikana er hann einn besti vængmaðurinn, en þeir bestu skora mikið. Ég ræddi við hann fyrir nokkrum dögum og við settum stefnuna á tíu til tólf mörk því við þurfum það frá vængmönnunum okkar. Við áttum erfitt uppdráttar á síðustu leiktíð þar sem við skoruðum ekki nóg til að berjast um meira en sætið sem við enduðum í.“
De Zerbi hrósaði einnig hinum nítján ára Mikey Moore en framtíð hans verður ákveðin á næstu dögum.
„Hann er mikilvægur fyrir okkur enda kemur hann úr akademíunni. Við þurfum að finna bestu lausnina fyrir bæði hann og okkur en ég myndi gjarnan vilja halda honum. Hann er ungur og mjög góður leikmaður.“
„Við megum hins vegar ekki taka ranga ákvörðun því hann þarf að spila og safna fleiri leikjum. Við munum finna bestu lausnina ásamt Johan Lange og Vinai.“
Sandro Tonali og Marcos Senesi voru ekki í leikmannahópnum en De Zerbi ákvað að þeir myndu frekar vinna í líkamlegu formi sínu en taka þátt í leiknum.
„Það hafði verið ákveðið að Sandro myndi æfa með Marcos Senesi til að styrkja sig líkamlega. Sandro þarf að vinna betur að því að komast í gott form en hann mun samt byrja á laugardaginn.“
Tottenham heimsækir Liverpool í þriðju umferð deildabikarsins og segir De Zerbi að þar bíði liðsins stórt próf.
„Frábært, þetta verður frábær leikur. Stundum mætir maður stóru liðunum snemma í keppninni og við þurfum að vinna slíka leiki ef við ætlum okkur að vinna bikarinn.“
„Þetta er stór áskorun fyrir leikmennina, mig og félagið. Við verðum að mæta tilbúnir, spila okkar leik og sýna okkar persónuleika,“ sagði De Zerbi.