Fotbolti.net
27.08.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Fyrrum leikmaður Barcelona til Valencia (Staðfest)

Fyrrum leikmaður Barcelona til Valencia (Staðfest)
Canon

Mynd: Valencia

Spænska félagið Valencia hefur fengið hægri bakvörðinn Arnau Martínez frá Girona.
Hinn 23 ára gamli Martínez skrifaði undir fimm ára samning við Valencia í gær.

Hann lék 200 leiki fyrir Girona í öllum keppnum eftir að hafa þreytt frumraun sína með aðalliðinu árið 2020, þar sem hann og félagið náðu sögulegum árangri að komast í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu.

Martínez er uppalinn í hinni víðfrægu La Masia-akademíu Barcelona og lék með U19 og U21 árs landsliðum Spánar, meðal annars á EM U21 fyrir þremur árum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.