Sigurvegari í Draumaliðsdeild Toyota - „Cloe á heiðurinn"
Auglýsing

Kristján Jónsson hæstánægður með verðlaunin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristján Jónsson varð hlutskarpastur í Draumaliðsdeild Toyota í Pepsi-deild kvenna í sumar. Kristján fékk 1072 stig í sumar og var þrettán stigum á undan næsta liði.
„Ég er ekki bilaður þegar kemur að þessu en ég hef mjög gaman að þessum leikjum. Ég var samt pínu stressaður fyrir lokaumferðina, ég viðurkenni það," sagði Kristján sem starfar sem íþróttafréttamaður hjá Morgunblaðinu.
„Fyrir næstsíðustu umferð grísaði ég á að setja fyrirliðabandið á Cloe Lacasse sem tók upp á því að skora fjögur mörk í þeirri umferð. Þá fór ég í efsta sætið. Cloe á klárlega heiðurinn að þessu."
Aðalverðlaunin eru glæsileg en Toyota gefur ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum með Gaman ferðum. Kristján er því á leið út til Englands í vetur.
„Ég er United maður og það er gaman að fara á Old Trafford. Síðan er önnur pæling að sjá Íslending spila. Ég á eftir að leggjast yfir þetta," sagði Kristján.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.