Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 27. september 2020 20:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Frakkland: Mbappe lagði upp tvö á Icardi - Sara Björk ekki í hóp
Mbappe lék sinn annan leik á tímabilinu.
Mbappe lék sinn annan leik á tímabilinu.
Mynd: Getty Images
Fimmtu umferð Ligue 1 lauk í dag með sjö leikjum og var lokaleikurinn viðureign Reims og PSG.

Kylian Mbappe lék sinn fyrsta leik á tímabilinu um síðustu helgi og þá skoraði hann. Í kvöld lagði hann upp tvö mörk fyrir Mauro Icardi þegar PSG vann sinn þriðja leik í röð eftir að hafa byrjað tímabilið á tveimur töpum.

Rennes er í toppsætinu með þrettán stig. PSG er með níu stig í 7. sæti.

Lyon með fullt hús stiga
Besta lið Evrópu kvennamegin, Lyon, hélt sigurgöngu sinni áfram með 2-1 sigri á Bordeaux í frönsku deildinni í kvöld. Eugenie Le Sommer og Ellie Carpenter skoruðu mörk Lyon.

Lyon er með fullt hús stiga og eitt í efsta sæti deildarinnar að loknum þremur umferðum.

Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir var ekki í leikmannahópi Lyon í kvöld.
Athugasemdir
banner