Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 27. september 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Götze búinn að vera án félags í tæpa þrjá mánuði
Hertha Berlín staðfestir áhuga
Mario Götze.
Mario Götze.
Mynd: Getty Images
Mario Götze er enn án félags eftir að hann yfirgaf Borussia Dortmund fyrir tæpum þremur mánuðum síðan.

Ferill Mario Götze byrjaði frábærlega hjá Borussia Dortmund en hann hefur verið á niðurleið alveg frá því að hann gekk í raðir Bayern München árið 2013. Götze kom aftur til Dortmund fyrir fjórum árum, en það gekk ekki upp og var samningur hans ekki framlengdur þegar hann rann út fyrr í sumar.

Götze, sem er 28 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður, hefur verið orðaður við félög á Ítalíu og Spáni en hann er ekki enn búinn að gera samning neins staðar.

Svo gæti farið að hann verði áfram í Þýskalandi. Hertha Berlín hefur staðfest áhuga á honum.

„Hann er auðvitað nafn sem er á borði hjá okkur," sagði Arne Friedrich, yfirmaður knattspyrnumála hjá Hertha Berlín, við DAZN.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner