sun 27. september 2020 17:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Íslendingar í sigurliðum nema í Belgíu - Ísak lék allan leikinn
Ísak Bergmann Jóhannesson
Ísak Bergmann Jóhannesson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Már Sigurjónsson.
Rúnar Már Sigurjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Íslendingar léku um alla Evrópu þennan laugardaginn. Hér að neðan er yfirlit yfir úrslitin í leikjunum sem lokið er.

Úrslit hjá stelpunum okkar í Evrópu:
Rosengard gerði mjög óvænt jafntefli - Ingibjörg skoraði í stórsigri

Belgía B-deild
RWDM 3-1 St. Gilloise
Lommel 1-2 Deinze

Í belgísku B-deildinni leika tveir Íslendingar. Aron Sigurðarson var í eldlínunni í gær þegar hans lið, St. Gilloise, tapaði gegn RWDM á útivelli. Aron spilaði fyrstu 64 mínúturnar í leiknum.

Í dag byrjaði Kolbeinn Þórðarson á bekknum hjá Lommel þegar liðið tapaði 1-2 á heimavelli gegn Deinze. Kolbeinn lek síðustu 33 mínútur leiksins. Lommel er í 3. sæti deildarinnar eins og er en 5. umferð deildarinnar er ekki lokið. St. Gilloise er í toppsætinu.

Danmörk - Superliga
Bröndby 2-1 Horsens

Hjörtur Hermannson sat allan tímann á bekknum þegar Bröndby skellti sér á topp dönsku Superliga með sigri á Horsens.

Önnur úrslit í Danmörku:
Danmörk: U21 markverðirnir héldu báðir hreinu - Jón Dagur í sigurliði

Kasakstan - úrvalsdeild
FC Astana 3-0 Zhetysu

Rúnar Már Sigurjónsson lék fyrstu 85 mínúturnar með Astan sem vann 3-0 sigur á heimavelli í dag. Astana er í 2. sæti deildarinnar eftir tíu umferðir, fjórum stigum frá toppsætinu.

Tyrkland - B-deild
Akhisarspor 2-0 Balikesirspor

Theodór Elmar Bjarnason spilaði fyrstu 83 mínúrnar í sigri Akhisarspor á heimavelli í gær. Elmar fékk að líta gula spjaldið á 79. mínútu. Akhisarspor er í 7. sæti deildarinnar þegar 3. umferð deildarinnar er ólokið.

Svíþjóð - Allsvenskan
Djurgarden 1-2 Norrköping

Ísak Bergmann Jóhannesson lék allan leikinn með Norrköping þegar liðið vann 1-2 útisigur á Djurgarden í dag. Ísaki var stillt upp á hægri vængnum í Flashscore snjallforitinu. Norrköping er í 2. sæti deildarinnar þegar flest lið hafa leikið 22 leiki.

Önnur úrslit í Svíþjóð:
Svíþjóð: Aron Jó með tvennu - Sex mörk í sex leikjum

Bandaríkin - MLS
New York City 4-0 FC Cincinnati

Guðmundur Þórarinsson kom inn á sem varamður og lék síðustu þrettán mínúturnar með New York City í 4-0 heimasigri. NYC er í 5. sæti Austurdeildarinnar eftir fjórtán leiki en 14. umferðin er ókláruð.
Athugasemdir
banner
banner
banner