Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 27. september 2021 23:06
Elvar Geir Magnússon
Kristján Óli og Mikael aftur sameinaðir í hlaðvarpi
Kristján Óli Sigurðsson, Höfðinginn, hefur sagt skilið við Dr. Football.
Kristján Óli Sigurðsson, Höfðinginn, hefur sagt skilið við Dr. Football.
Mynd: Úr einkasafni
Það nötrar í Podcast heimum en hlaðvarpsstjörnurnar Kristján Óli Sigurðsson og Mikael Nikulásson eru aftur á leið undir sömu sæng.

Þeir tveir ásamt Hjörvari Hafliðasyni mynduðu þríeyki sem var gríðarlega vinsælt hjá Dr. Football áður en leiðir skildu.

Mikael sleit sig svo úr því samstarfi og stofnaði The Mike Show sem var umdeildur og hefur nú sent frá sér sinn síðasta þátt.

Þeir Kristján og Mikael eru langt í frá farnir úr boltaumræðunni en Hjörvar segir frá því á Facebook svæði Dr. Football að Kristján sé hættur í þættinum til að fara í hlaðvarpsveitu í áskrift hjá Sýn.

Þar verða Kristján og Mikael væntanlega sameinaðir á ný en von er á fréttatilkynningu í vikunni.


Mikael Nikulásson


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner