Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 27. september 2022 09:47
Elvar Geir Magnússon
Arnar Halls tekur við Njarðvík (Staðfest) - Hólmar Örn kveður
Lengjudeildin
Arnar Hallsson.
Arnar Hallsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Hallsson hefur verið ráðinn þjálfari Njarðvíkur í Lengjudeildinni. Arnar hefur á sínum þjálfaraferli m.a. þjálfað meistaraflokk karla hjá Aftureldingu og ÍR. Hann hætti hjá Breiðholtsliðinu á miðju tímabili í sumar þegar hann sagði félagið ekki hafa staðið við gefin loforð.

„Njarðvík býður Arnar velkominn til starfa hjá félaginu og vonast til að samstarfið verði farsælt. Arnar er nú staddur ásamt fjölskyldu sinni vestanhafs þar sem hann mun fagna 50 ára afmæli sínu á morgun. Við hlökkum til að taka á móti Arnari í vallarhúsinu þegar hann kemur til baka," segir í tilkynningu Njarðvíkinga.

Þjálfarateymið sem stýrði Njarðvík til sigurs í 2. deildinni í sumar hefur kvatt félagið. Áður var ljóst að Bjarni Jóhannsson myndi hætta en nú er staðfest að Hólmar Örn Rúnarsson hefði ákveðið að segja skilið við Njarðvíknga.

„Bói tók við þjálfun liðsins ásamt Bjarna Jó í nóvember 2020. Við viljum nýta tækifærið til þess að þakka Bóa fyrir góð störf í þágu félagsins og óska honum góðs gengis í þeim verkefnum sem hann tekur fyrir höndum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner