27.10.13 - 21:00
Magnús Már Einarsson
Ásgeir Marteinsson í Fram (Staðfest)

Mynd: Heimasíða Fram

Mynd: Heimasíða Fram
Fram hefur fengið Ásgeir Marteinsson til liðs við sig frá HK en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í kvöld. Ásgeir er 19 ára gamall en hann er framliggjandi miðjumaður.
Ásgeir spilaði stórt hlutverk í liði HK sem vann 2. deildina í sumar en hann skoraði tíu mörk í 21 leik og var eftir tímabilið valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar í vali fyrirliða og þjálfara.

,,Fram telur mikinn feng í að hafa náð samningum við Ásgeir og hlakkar til samstarfsins framundan,\" segir á heimasíðu Fram.
Bjarni Guðjónsson, þjálfari Fram, lýsti því yfir eftir að hann tók við að hann myndi byggja liðið upp á ungum og efnilegum leikmönnum og miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópnum að undnaförnu. Átta leikmenn eru horfnir á braut en Ásgeir er aftur á móti sjötti ungi leikmaðurinn sem kemur til Fram á rúmri viku.
Í gær komu Ósvald Jarl Traustason og Alexander Már Þorláksson til félagsins frá ÍA og Breiðabliki og í fyrradag kom Einar Bjarni Ómarsson frá KV. Um síðustu helgi komu þeir Arnþór Ari Atlason frá Þrótti og Hafsteinn Briem frá Haukum.

Heimild: Heimasíða Fram