27.10.13 - 15:10
Alexander Freyr Tamimi
Ólafur Þór ráðinn þjálfari Stjörnunnar (Staðfest)

Ólafur Þór Guðbjörnsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Þór Guðbjörnsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Þór Guðbjörnsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar, en leikmönnum var tilkynnt ráðningin á fundi klukkan 15:00 í dag.
Ólafur tekur við liði Stjörnunnar af Þorláki Árnasyni, sem hefur stýrt liðinu undanfarin þrjú tímabil með frábærum árangri.
Ólafur, sem þjálfaði Stjörnuna frá og með júní 2010 og út það tímabil, gerði samning við félagið út næstu tvö keppnistímabil. Hann tekur formlega við störfum þann 1. febrúar 2014, en þangað til mun Þorlákur áfram stýra liðinu.
Ólafur er einnig þjálfari U19 landsliðs kvenna, sem er komið í milliriðil á Evrópumótinu, og mun hann klára það verkefni með stelpunum.
Ólafur byrjaði að þjálfa U17 landslið kvenna árið 1997 og tók svo við U19 liðinu árið 1999. Hefur hann verið með liðið síðan þá.
Ljóst er að Ólafs bíður erfitt skarð að fylla, en Þorlákur Árnason hefur náð mögnuðum árangri með liðið undanfarin ár.
Stjarnan varð Íslandsmeistari í fyrsta skiptið í sögunni sumarið 2011 og bikarmeistari ári síðar. Sumarið 2013 varð liðið svo aftur Íslandsmeistari með fullt hús stiga í Pepsi-deild kvenna.