27.10.14 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Gattuso hættur í Grikklandi (Staðfest)

Það gengur hvorki né rekur hjá Gattuso sem þjálfara.

Mynd: Getty Images

Þjálfaraferill hins grjótharða Gennaro Gattuso er ekkert að batna með tímanum, en hann er nú hættur sem þjálfari gríska liðsins OFI Crete.
Þetta er þriðja starfið sem Gattuso yfirgefur á einungis 18 mánuðum, en þessi fyrrum landsliðsmaður Ítalíu stýrði liðinu einungis í sjö leikjum og náði í níu stig.

Gattuso var rekinn frá svissneska liðinu Sion í maí 2013 eftir einungis 11 deildarleiki, en þar áður hafði Palermo rekið hann eftir aðeins sex leiki í Seriu B.
Hann sagði þegar hann yfirgaf félagið að leikmenn félagsins hafi aldrei haft trú á sér og sagðist einfaldlega ekki getað haldið áfram í starfi.