27.10.14 - 14:12
Magnús Már Einarsson
Hallbera í Breiðablik (Staðfest)

Borghildur Sigurðardóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir.

Mynd: Breiðablik

Hallbera Guðný Gísladóttir hefur gengið til liðs við Blika og skrifað undir þriggja ára samning en híun kemur til félagsins frá Val.
,,Blikar ætla sér stóra hluti á næsta keppnistímabili og koma Hallberu er hluti af þeim áformum,\" segir í fréttatilkynningu frá Blikum.

Hallbera er uppalin á Skaganum og lék 36 leiki með ÍA í meistaraflokki áður en hún skipti yfir í Val þar sem hún lék 130 leiki og vann 5 Íslandsmeistaratitla og 4 bikarmeistaratitla.
2012 gekk Hallbera til liðs við Pitea í Sænsku úrvaldsdeildinni og 2014 lék hún með Torres á Ítalíu áður en hún skipti aftur í Val í júlí. Hallbera hefur leikið 57 landsleiki fyrir A landsliðið ásamt fjölda leikja fyrir yngri landslið Íslands.
,,Hallbera kemur með mikla reynslu inn í hið unga lið Breiðabliks og á vafalaust eftir að reynast dýrmæt í að koma Blikum á toppinn þar sem við teljum okkur eiga heima. Við bjóðum Hallberu velkomna og óskum Blikum nær og fjær til hamingju með þetta,\" segir í fréttatilkynningunni.