27.10.14 - 16:50
Magnús Már Einarsson
Hólmar Örn í Keflavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík hefur fengið miðjumanninn Hólmar Örn Rúnarsson í sínar raðir frá FH.
Hólmar Örn hefur skrifað undir tveggja ára samning við Keflavík en þetta staðfesti Þorsteinn Magnússon formaður knattspyrnudeildar í samtali við Fótbolta.net í dag.

Hólmar er uppalinn hjá Keflavík en hann hefur leikið með FH undanfarin fjögur ár.
Þessi 33 ára gamli miðjumaður á að baki 162 deildarleiki með Keflavíku og hefur skorað í þeim 23 mörk auk 24 bikarleikja og átta leikja í Evrópukeppnum.
Keflvíkingar eru stórhuga fyrir næsta tímabil en þeir eru einnig að reyna að fá Guðjón Árna Antoníusson frá FH.