27.10.14 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Jose Riga rekinn frá Blackpool (Staðfest)

Jose Riga hélt Charlton í Championship deildinni á síðasta tímabili en náði ekki samkomulagi við stjórn félagsins til lengri tíma.

Mynd: Getty Images

Jose Riga hefur verið rekinn úr starfi sínu sem knattspyrnustjóri Blackpool eftir um fjóra mánuði í starfi.
Riga var ráðinn í sumar en Blackpool er á botni Championship deildarinnar og hefur tapað ellefu leikjum af fimmtán í öllum keppnum og unnið aðeins einn á tímabilinu.

Riga er 57 ára gamall Belgi og tók hann við félaginu í sumar þegar aðeins sex leikmenn voru í leikmannahópnum.
Honum tókst að setja saman leikmannahóp en kvartaði undan litlum fjármunum til að vinna með.
Þetta þýðir að Blackpool leitar nú að sínum fimmta stjóra á tveimur árum, eða síðan Ian Holloway fór til Crystal Palace í nóvember 2012.