Fotbolti.net
27.10.15 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Andri Fannar í Njarðvík (Staðfest)

Andri Fannar í Njarðvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Fannar Freysson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Njarðvík á nýjan leik.

Andri Fannar var fastamaður á miðjunni hjá Haukum í 1. deildinni á síðasta tímabili en hann er nú genginn til liðs við Njarðvík fyrir baráttuna í 2. deild næsta sumar.
Hinn 23 ára gamli Andri Fannar var valinn efnilegastur í 2. deildinni árið 2011 þegar hann skoraði 17 mörk með Njarðvíkingum.

Árin 2013 og 2014 var Andri á mála hjá Keflavík en síðara tímabilið fór hann til Njarðvíkinga á láni.

Andri hefur samtals skorað 27 mörk í 70 deildar og bikarleikjum með Njarðvíkingum á ferli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.