Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 27. október 2017 11:19
Magnús Már Einarsson
Coutinho ekki með Liverpool á morgun
Frá keppni.
Frá keppni.
Mynd: Getty Images
Philippe Coutinho verður ekki með Liverpool gegn Huddersfield á morgun vegna meiðsla. Enskir fjölmiðlar greina frá þessu.

Brasilíumaðurinn er einnig tæpur fyrir leikinn gegn Maribor í Meistaradeildinni í næstu viku sem og leikinn gegn West Ham eftir rúma viku.

Saido Mane og Adam Lallana eru einnig frá keppni vegna meiðsla og því vantar öfluga menn framarlega á vellinum hjá Liverpool.

Stuðningsmenn Liverpool bíða spenntir eftir að sjá liðsuppstillinguna gegn Huddersfield á morgun.

Króatíski miðvörðurinn Dejan Lovren var tekinn af velli í fyrri hálfleik þar en áhugavert verður að sjá hvaða leikmenn verða í vörninni á morgun.

Uppfært 13:34: Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, vill ekki alveg útiloka að Coutinho spili. Hann segir að það skýrist eftir æfingu í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner