27.11.13 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Halla og Sonný í Breiðablik (Staðfest)

Sonný Lára Þráinsdóttir.

Mynd: Breiðablik

Halla Margrét Hinriksdóttir.

Mynd: Breiðablik

Sonný Lára Þráinsdóttir.

Mynd: Breiðablik
Markverðirnir Sonný Lára Þráinsdóttir og Halla Margrét Hinriksdóttir hafa gengið til liðs við Breiðablik.
Sonný gerir tveggja ára samning en Halla þriggja ára samning.

Sonný Lára Þráinsdóttir er 27 ára gömul og kemur úr Fjölni þar sem hún hefur leikið nær allan sinn feril. Sonný er reyndur markvörður sem hefur rúmlega tíu ára reynslu úr úrvalsdeild og 1. deild.
Halla Margrét Hinriksdóttir er 19 ára markvörður úr Mosfellsbænum sem á að baki 8 leiki með U19 ára landsliði Íslands ásamt því að hafa spilað 13 leiki í Pepsi deildinni með Aftureldingu.
,,Sonný og Halla hafa æft með Breiðablik að undanförnu og hafa ákveðið að ganga til liðs við bikarmeistarana sem hafa í hyggju að styrkja sig enn frekar fyrir næsta tímabil,\" segir á heimasíðu Breiðabliks.
Birna Kristjánsdóttir og Mist Elíasdóttir vörðu mark Breiðabliks á nýliðnu tímabili.
Birna sleit krossband í sumar og er frá keppni og þá hefur Mist fengið leyfi frá Breiðabliki til að leita sér að nýju félagi.