Fotbolti.net
27.11.13 - 09:41
Magnús Már Einarsson

Ómar Friðriksson í Víking R. (Staðfest)

Ómar Friðriksson.

Ómar Friðriksson.

Canon

Mynd: Vikingur.net

Víkingur hefur fengið hægri bakvörðinn Ómar Friðriksson til liðs við sig frá KA.

Ómar hefur æft með Víkingum undanfarnar vikur og hann hefur nú samið við nýliðana í Pepsi-deildinni.

<i>,,Ómar er boðinn velkominn í Víking þar sem hann mun án efa eiga bjarta framtíð,\"</I> segir á heimasíðu Víkings.
Ómar er fæddur árið 1993 en hann hefur leikið með meistaraflokki KA undanfarin þrjú ár.

Í sumar spilaði Ómar alla leiki KA í fyrstu deildinni en samtals hefur hann skorað þrjú mörk í 47 deildar og bikarleikjum með liðinu. Þá á hann að baki leiki með U17 og U19 ára landsliði Íslands.

Ómar er annar leikmaðurinn sem Víkingur fær til sín í vetur en skoski varnarmaðurinn Alan Löwing kom til félagsins frá Fram á dögunum.

Heimild: Vikingur.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.