27.11.13 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Stefán Birgir í Njarðvík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefán Birgir Jóhannesson skrifaði í gær undir samning við Njarðvík en hann fer til liðsins á lánssamningi út næsta ár.
Njarðvíkingar leika í 2. deildinni en Guðmundur Steinarsson tók við sem aðalþjálfari liðsins í haust.
Njarðvíkingar leika í 2. deildinni en Guðmundur Steinarsson tók við sem aðalþjálfari liðsins í haust.
Stefán Birgir sem er sóknarsinnaður leikmaður fæddur 1993 kemur frá Leikni í Reykjavík en síðasta sumar lék hann 16 leiki fyrir Breiðholtsliðið og gerði tvö mörk.
Einnig á hann þrjá leiki að baki með Fram árið 2012.
„Frumraun hans með okkur er í Langbest hraðmótinu á föstudaginn kemur. Við bjóðum Stefán Birgi velkomin í okkar raðir,\" segir á heimasíðu Njarðvíkur.